Já komið sæl öll, af mér er allt fínt að frétta, er enþá að vinna í Vaskahúsinnu og hefur margt lagast þó það sé langt í land að þetta sé búið. Er svo furðulegt hvað það er eitthvað erfitt að klára þetta smotterý sem er eftir, og eru þetta allt svona svotterý sem er eftir, sem meira að segja ég gæti klárað, en nóg um það.
Ástæðan fyrir því að ég settist hér er að ég var að spila disk hér í gær sem mér fanst alveg snilld, held hann hafi komið út 2001 eða 2002. Þetta er sem sagt með Kristján Hreinssyni og heitir Í stuði með Guði, og ætla ég að skrifa nyður textan við eitt lagið sem mér fynst ekki sem verst

VIÐ SJÁLFSTÆÐISMENN.
Við sjálfstæðismenn fordæmum öryrkja alla
og aldraðar frekjur sem spjalla
um kvótann sem flokksbræður fá.
Við sjálfstæðismenn viljum á hálendi virkja
ogvini við ætlum að styrkja
með sjóðum sem enginn má sjá.
Við sjálfstæðismenn viljum með frjálshyggju farga
þeim föntum sem vesælir garga
á forsjá og félagsleg bákn.
Við sjálfstæðismenn viljum að dópsalar dafni
að D-listinn auðlindum safni
því frelsi er tímanna tákn.
Við náum hér völdunum aftur og enn,
ágjarnir,þjófóttir,greindir og heimskir í senn
en umfram allt siðblindir sjálfstæðismenn.
Við sjálfstæðismenn dönsum með Djöflinum sjálfum
og D-listajöfrinum hálfum
sem siðblindur sötra sinn drykk.
Við sjálfstæðismenn nærumst á hræsni og hroka
við helst viljum stofnunumloka
eða veita þær vinum á slikk.
Við náum hér völdunum aftur og enn
alsgáðir, blindfullir ; góðir og slæmir í senn
en umfram allt samstæðir sjálfstæðismenn.
Við sjálfstæðismenn trúum á fullkomið frelsi,
við fordæmum kúgun og helsi
þótt okkur sé óeðlið tamt.
Við sjálfstæðismenn erum hinn fullkomni flokkur
já, fólkið það tilbiður okkur
en loforðin svíkjum samt.
Við náum hér völdunum aftur og enn,
óprúttnir,gjafmildir; baldnir og hlýnir í senn
en umfram all sannfærðir sjálfstæðismenn.
sem sagt nú er ég búin að vera að raula þetta lag og fynst það bara ekkert leiðinlegt.
Annars lítið hér.
Þar til næst. Knús.